Sony Xperia L - Hvað er Android™‎?

background image

Hvað er Android™?

Xperia snjallsími þinn frá Sony keyrir Android stýrikerfi. Android síminn getur gert flesta

valkosti eins og tölvan og þú getur aðlagað hann að þörfum þínum. Til dæmis, getur þú

bætt við eða eytt forritum, eða breytt forritum sem fyrir eru til að bæta virknina. Á Google

Play™ getur þú sótt fjölda forrita og leikja frá stöðugt stækkandi safni. Einnig getur þú

samnýtt forrit á Android™ símanum við öðrum forritum og við þjónustur sem þú notar á

netinu. Til dæmis getur þú tekið öryggisafrit af tengiliðum símans, opnað mismunandi

pósthólf og dagbækur frá einum stað, haft yfirsýn og tengst netsamfélögum.
Android™ símar eru í stöðugri þróun. Þegar nýr hugbúnaður er í boði og síminn styður

þennan nýja hugbúnað getur þú uppfært símann til að sækja nýja eiginleika og nýjustu

betrumbætur.

Android™ síminn er með Google™ þjónustur uppsettar. Til að ná því mesta frá Google™

þjónustum sem fylgja ættir þú að hafa Google™ reikning og skrá þig inn á hann þegar þú

ræsir símann þinn í fyrsta skipti. Internetaðgangur er einnig forsenda notkunar margra

eiginleika í Android™.

Það getur verið að nýútkominn hugbúnaður sé ekki samþýðanlegur öllum símum.