Horft á myndskeið í kvikmyndaforritinu
Notaðu kvikmyndaforritið til að spila kvikmyndir og annað myndskeiðsefni sem þú hefur
hlaðið niður í tækið þitt. Með Kvikmyndaforritinu geturðu einnig sótt veggspjöld,
samantektir og upplýsingar um flokk og leikstjóra kvikmynda. Þú getur líka spilað
kvikmyndirnar þína á öðrum tækjum sem eru tengd við sama netkerfi.
Myndskeið sem tekin er upp á myndavél tækisins kom upp í möppuforritinu, ekki í
kvikmyndaforritinu.
Ef til vill er ekki hægt að spila öll myndskeið í kvikmyndaforritinu.
Yfirlit yfir kvikmyndir
1
Opnaðu forritið Video Unlimited
2
Skoða valkosti valmyndar
3
Pikkaðu til að spila myndskeiðið sem var spilað síðast
4
Skoðaðu öll myndskeið sem hefur verið hlaðið niður eða verið vistuð í tækinu þínu
5
Pikkaðu til að spila vistuð eða sótt myndskeið
6
Pikkaðu til að skoða öll myndskeið í Video Unlimited
7
Pikkaðu til að skoða myndskeið í Video Unlimited
Sony Entertainment Network með Video Unlimited og Music Unlimited er ekki fáanlegt í öllum
mörkuðum. Aðra áskrift þarf. Viðbótarskilmálar eiga við.
Myndskeið spilað í kvikmyndaforritinu
1
Á Heimaskjár skaltu pikka á og finna og pikka á Kvikmyndir.
2
Finndu og pikkaðu á myndskeiðið sem þú vilt spila. Ef myndskeiðið birtist ekki á á
skjánum skaltu pikka á Allt í Safnið mitt flipann og finna svo myndskeiðið sem þú
vilt spila.
3
Pikkaðu á skjáinn til að sýna eða fela stýringarnar.
4
Til að gera hlé á spili pikkarðu á . Til að halda spilun tónlistar áfram skaltu pikka á
.
5
Dragðu vinnslustikumerkið til vinstri til að spóla til baka. Dragðu vinnslustikumerkið
til hægri til að spóla áfram.
83
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Myndskeið spilað á öllum skjánum
1
Þegar myndskeið er spilað skaltu pikka á skjáinn til að birta stýritakkana.
2
Pikkaðu á .
Þú getur aðeins skipt yfir í heilskjástillingu ef myndskeiðið er ekki þegar í spilun á öllum
skjánum. Pikkaðu á til að spila myndskeið í upprunalegri stærð.
Myndskeið spilað á ytra tæki
1
Þegar myndskeiðið er spilað skaltu pikka á skjáinn til að birta alla stýritakkana.
2
Pikkaðu á > Throw.
3
Veldu ytra tæki til að spila myndskeiðið í. Ef engin ytri tæki eru tiltæk skaltu fylgja
leiðbeiningunum á skjánum til að bæta einu við.
Stillingum breytt í Kvikmyndum
1
Á Heimaskjár skaltu pikka á og finna og pikka á Kvikmyndir.
2
Pikkaðu á og breyttu svo stillingunum að vild.
Hljóðstillingum breytt meðan myndskeið er spilað
1
Meðan myndskeið er spilað skaltu pikka á skjáinn til að birta stýritakkana.
2
Pikkaðu á og svo á Hljóðstillingar.
3
Merktu við gátreitinn fyrir hljóðstillingar sem þú vilt virkja.
4
Þegar því er lokið pikkarðu á Í lagi.
Myndskeiði deilt með öðrum
1
Þegar myndskeið er spilað pikkarðu á , pikkaðu síðan á Samnýta.
2
Í valmyndinni sem opnast, pikkarðu á forritið sem þú vilt nota til að deila völdu
myndskeiði, fylgdu síðan viðeigandi skrefum til að senda það.