Sony Xperia L - Notkun myndavélastillinga hreyfimynda

background image

Notkun myndavélastillinga hreyfimynda

Til að stilla myndavélastillingar

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á til að birta allar stillingar.

3

Veldu stillinguna sem þú vilt breyta og breyttu að vild.

Sérstilling stillingaskjás myndavélar

1

Þegar myndavélin hefur verið opnuð, pikkaðu á til að birta allar stillingar.

2

Styddu á stillinguna sem á að færa og dragðu hana á sinn stað.

Ef þú dregur stillinguna út fyrir stillingaskjáinn er hætt við breytinguna.

Yfirlit yfir stillingar myndavélar

Venjuleg

Breyttu stillingum myndavélarinnar handvirkt.

Raðmyndataka

Notaðu raðmyndatöku til að ná mörgum myndum í röð með því að halda niðri lokaratakkanum. Þú

getur valið á milli þriggja raðmyndatökuhraða, með ólíkri upplausn, þ.e.a.s. mismunandi

myndstærðum.

Fremri myndavél

Veldu fremri myndavélina ef þú vilt taka sjálfsmyndir.

Myndhrif

Bættu áhrifum við myndir.

Umhverfisval

Notaðu forstilltar umhverfisstillingar til að stilla myndavélina fljótt við algengar kringumstæður.

Umhverfiskennsl

Myndavélin velur hentugasta umhverfið. Umhverfistákn og texti birtast þegar umhverfi er valið.

Víðmynd

Notaðu þessa stillingu til að taka gleiðhyrndar víðmyndir. Ýttu bara á myndavélartakkann og færðu

myndavélina stöðugt frá einni hlið yfir í aðra.

68

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Upplausn

Veldu á milli mismunandi myndastærða og hlutfalla áður en þú tekur mynd. Mynd í meiri

upplausn þarf meira minni.

3264×2448(4:3)

8 megapixla mynd í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í

mikilli upplausn.

3104×1746(16:9)

5 megapixla mynd í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í

mikilli upplausn.

1632×1224(4:3)

2 megapixla mynd í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá.

1920×1080(16:9)

2 megapixla mynd í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á víðskjá.

640×480(4:3)

VGA snið með 4:3 myndhlutfalli.

Flass

Notaðu flassið til að taka myndir þegar lýsing er léleg eða myndefni er baklýst.

Sjálfvirkt

Myndavélin velur sjálfkrafa hvort lýsingaraðstæður kalla á notkun flass.

Fylliflass

Notaðu þessa stillingu þegar bakgrunnurinn er bjartari en myndefnið. Þannig er komið í veg fyrir

óæskilega dökka skugga.

Slökkt

Slökkt er á flassinu. Stundum geta myndgæði verið betri án flass, jafnvel þótt birtuskilyrði séu léleg.

Stöðug hönd er forsenda töku góðra mynda án flass. Notaðu tímastillingu til að forðast að myndir verði

óskýrar.

Laga rauð augu

Dregur úr rauðum lit í augum þegar tekin er mynd.

Tímastilling

Með tímastillingunni er hægt að taka mynd án þess að halda á tækinu. Notaðu þennan

eiginleika til að taka sjálfsmyndir eða hópmyndir þar sem allir geta verið á myndinni. Þú

getur einnig notað tímastilli til að forðast að myndavélin hristist við myndatöku.

Kveikt (10 sek.)

Veldu 10 sekúndna bið frá því að pikkað er á myndavélarskjáinn þar til að myndin er tekin.

Kveikt (2 sek.)

Veldu 2 sekúndna bið frá því að pikkað er á myndavélarskjáinn þar til að myndin er tekin.

Slökkt

Mynd er tekin um leið og þú pikkar á myndavélarskjáinn.

Smile Shutter™

Notaðu broslokuna til að ákveða hvernig brosi myndavélin bregst við áður en mynd er

tekin.

Myndaraðahraði

Notaðu tökustillingu myndaraðahraða til að ná nokkrum myndum í runu með því að halda

fingrinum ýttum á lokarahnappinn. Þú getur valið á milli þriggja raðmyndatökuhraða, með

ólíkri upplausn, þ.e.a.s. mismunandi myndstærðum.

Flýtiræsing

Notaðu flýtiræsingu til að ræsa myndavélina úr læstum skjá. Ef tækið er í svefnstillingu

myndavélarinnar ýtirðu á myndavélartakka myndavélarinnar.

69

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Ræsa og smella af

Með því að ýta og halda myndavélartakkanum inni er mynd tekin strax og myndavélin er ræst úr

svefnstillingu.

Aðeins ræsa (ljósmyndavél)

Með því að ýta og halda niðri myndavélartakkanum er ljósmyndavélin ræst úr svefnstillingu.

Ræsa og taka upp myndskeið

Með því að ýta og halda niðri myndavélartakkanum er fyrsta myndskeiðið tekið um leið og

myndupptökuvélin er ræst úr svefnstillingu.

Aðeins ræsa (kvikmyndatökuvél)

Með því að ýta og halda niðri myndavélartakkanum er myndupptökuvélin ræst úr svefnstillingu.

Slökkt

Fókusstilling

Fókuseiginleikinn stjórnar því hvaða hluti myndarinnar á að vera skarpur. Þegar kveikt er á

samfelldum sjálfvirkum fókus stillir myndavélin stöðugt fókus til að svæðið innan gula

fókusrammans haldi skerpu sinni.

Stakur sjálfv. fókus

Myndavélin stillir sjálfkrafa fókus á valið myndefni. Kveikt á samfelldum sjálfvirkum fókus. Styddu á

myndavélarskjáinn þangað til guli fókusramminn verður blár, sem bendir á að fókusinn sé stilltur. Myndin

er tekin þegar þú tekur fingurinn af.

Andlitsgreining

Myndavélin nemur sjálfkrafa allt að fimm mannsandlit og birtist rammi utan um þau í myndglugganum.

Myndavélin stillir sjálfkrafa fókus á andlitið sem er næst. Einnig er hægt að velja hvaða andlit á að stilla

fókus á með því að pikka á það á skjánum. Þegar þú pikkar á myndavélarskjáinn sýnir bláan ramma

hvaða andlit er valið og í fókus. Ekki er hægt að nota andlitsgreiningu í öllum umhverfisstillingum. Kveikt á

samfelldum sjálfvirkum fókus.

Snertifókus

Snertu svæði á myndavélarskjánum til að stilla fókus á það. Slökkt á samfelldum sjálfvirkum fókus.

Styddu á myndavélarskjáinn þangað til guli fókusramminn verður blár, sem bendir á að fókusinn sé

stilltur. Myndin er tekin þegar þú tekur fingurinn af.

Þessi stilling er einungis í boði í Venjuleg tökustillingu.

Ljósgildi

Veldu birtustig myndarinnar sem á að taka. Hærra gildi gefur til kynna hærra birtustig.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni Venjuleg.

HDR

Notaðu HDR (hátt virkt svið) stillinguna til að taka mynd á móti sterkri baklýsingu eða við

aðstæður þar sem birtuskilin eru skörp. HDR bætir upp fyrir tapið á smáatriðum og gefur

mynd sem er málsvari fyrir bæði dökkum og ljósum svæðum.

Þessi stilling er einungis í boði í Venjuleg tökustillingu.

Hvítjöfnun (ljósgjafi)

Hvítjöfnunarstillingin stillir litajafnvægið í samræmi við birtuskilyrði.

Sjálfvirk

Stillir litajafnvægið sjálfkrafa til að passa við birtuskilyrðin.

Ljósapera

Stillir litajafnvægi fyrir hlýja birtu, eins og í lýsingu frá ljósaperum.

Flúrljós

Stillir litajafnvægið að flúrlýsingu.

Dagsbirta

Stillir litajafnvægið fyrir sólskin utandyra.

70

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Skýjað

Stillir litajafnvægið að skýjuðu veðri.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni Venjuleg.

ISO

Þú getur minnkað óskýra mynd orsakað af dökkum aðstæðum eða myndefni á hreyfingu

með auknu ISO-ljósnæmi.

Sjálfvirkt

Stilltu ISO-ljósnæmi sjálfkrafa.

100

Stilltu ISO-ljósnæmi á 100.

200

Stilltu ISO-ljósnæmi á 200.

400

Stilltu ISO-ljósnæmi á 400.

800

Stilltu ISO-ljósnæmi á 800.

Þessi stilling er einungis í boði í Venjuleg tökustillingu.

Mæling

Þessi eiginleiki ákvarðar sjálfkrafa rétta lýsingu með því að mæla magn ljóssins í mynd

sem á að taka.

Miðjun

Stillir lýsingu á miðju myndarinnar.

Meðaltal

Reiknar út lýsingu samkvæmt magni ljóssins á allri myndinni.

Punktur

Stillir lýsingu á mjög litlum hluta myndarinnar sem á að taka.

Þessi stilling er einungis í boði í Venjuleg tökustillingu.

Hristivörn

Erfitt getur reynst að halda tækinu kyrru við myndatöku. Hristivörnin dregur úr áhrifum

vegna smávægilegra hreyfinga handarinnar.

Hnitamerking

Merktu myndir með upplýsingum um hvar þær voru teknar.

Kveikt

Þegar kveikt er á hnitamerkingu er námunduð landfræðileg staðsetning vistuð með myndum þegar þú

tekur þær. Til að nota hnitamerkingu þarftu að gera staðsetningareiginleika virka í Stillingar valmyndinni.

Til að hægt sé að vista hnitamerkingu með mynd þarf að ákveða staðsetningu áður en mynd er tekin.

Staðsetning er greind þegar birtist á myndavélarskjánum. Á meðan tækið þitt ákvarðar staðsetningu
sést .

Slökkt

Þegar slökkt er á hnitamerkingu er ekki hægt að sjá staðsetningu myndatökunnar.

Snertitaka

Veldu fókussvæði með því að snerta myndavélarskjáinn með fingrinum. Myndin er tekin

um leið og þú tekur fingurinn af. Þessi stilling er aðeins í boði þegar fókusstilling er stillt á

snertifókus.

71

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Kveikt

Slökkt

Lokarahljóð

Veldu að kveikja eða slökkva á lokarahljóði þegar þú tekur upp myndskeið.

Gagnageymsla

Þú getur valið að vista gögnin þín annað hvort á færanlegt SD-kort eða yfir í innri geymslu

tækisins.

Innri geymsla

Myndir eða myndskeið eru vistuð á minni tækisins.

SD-kort

Myndir eða myndskeið eru vistuð á SD-kort.