Sony Xperia L - Að nota myndupptökuna

background image

Að nota myndupptökuna

Myndskeið tekið upp með myndavélartakkanum

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Ýttu á myndavélartakkann til að hefja myndupptöku.

3

Ýttu aftur á myndavélartakkann til að stöðva upptökuna.

Taktu upp myndskeiðið þitt í láréttri stöðu til að fá bestu útkomuna.

Myndskeið tekið upp með því að pikka á skjáinn

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Beittu myndavélinni að viðfangsefninu.

3

Pikkaðu á til að hefja upptöku.

4

Pikkaðu á til að hætta upptöku.

Taktu upp myndskeiðið þitt í láréttri stöðu til að fá bestu útkomuna.

Spilun upptekinna myndskeiða

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á smámyndir efst til hægri á skjánum.

3

Flettu til vinstri eða til hægri til að fletta í gegnum allar skrárnar með myndum og

myndskeiði. Myndskeið eru merkt með .

4

Pikkaðu á til að spila myndskeið.

5

Pikkaðu á eða til að stöðva spilun myndskeiðsins.

Uppteknu myndskeiði eytt

1

Flettu að því myndskeiði sem þú vilt eyða.

2

Pikkaðu á tóma svæðið á skjánum til að birtist.

3

Pikkaðu á .

4

Pikkaðu á OK til að staðfesta.

Að nota stillingar myndupptökunnar

Til að stilla stillingar upptökuvélarinnar

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á eitt af stillingartáknunum á skjánum.

3

Pikkaðu á til að birta allar stillingar.

4

Veldu stillinguna sem á að breyta, breyttu henni síðan.

72

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Sérstilling stillingaskjás upptökuvélar

1

Þegar myndupptökuvélin hefur verið opnuð, pikkaðu á til að birta allar stillingar.

2

Haltu inni stillingunni sem þú vilt færa og dragðu hana á sinn stað.

Ef þú dregur stillinguna út fyrir stillingaskjáinn er hætt við breytinguna.

Yfirlit yfir stillingar myndupptökuvélar

Umhverfi

Umhverfiseiginleikinn gerir þér kleift að setja upp myndavélina á fljótlegan hátt fyrir

algengar aðstæður með því að nota forstilltar umhverfisstillingar. Myndavélin ákvarðar

ýmsar stillingar sem passa við valið umhverfi og tryggja myndgæði hreyfimyndarinnar.

Slökkt

Slökkt er á umhverfiseiginleika og hægt er að taka myndskeið handvirkt.

Mjúk smella

Notað fyrir töku myndskeiðs gegn mjúkum bakgrunnum.

Landslag

Notað fyrir landlagsmyndskeið. Myndavélin stillir fókus á fjarlæga hluti.

Nótt

Þegar næturstillingin er virk er ljósnæmi aukið. Notað í illa lýstu umhverfi. Myndskeið af hlutum á mikilli

hreyfingu gætu orðið óskýr. Haltu hendinni stöðugri eða notaðu stuðning. Slökktu á næturstillingunni

þegar birtuskilyrði eru góð til að bæta myndgæðin.

Strönd og snjór

Notað við bjartar aðstæður til að koma í veg fyrir undirlýstar hreyfimyndir.

Íþróttir

Notað fyrir myndskeið af hlutum á mikilli hreyfingu. Stuttur lýsingartími dregur úr óskýrleika vegna

hreyfingar.

Partí

Notað við upptöku myndskeiða innandyra í illa lýstu umhverfi. Þetta umhverfi nemur bakgrunnsljós eða

kertaljós innandyra. Myndskeið af hlutum á mikilli hreyfingu gætu orðið óskýr. Haltu hendinni stöðugri eða

notaðu stuðning.

Upplausn fyrir myndskeið

Upplausn myndskeiðs stillt fyrir mismunandi snið.

1280×720(16:9)

HD (háskerpu) snið með 16:9 myndhlutfalli. 1280×720 pixlar.

864×480(9:5)

FWVGA snið með 9:5 myndhlutfalli.

640×480(4:3)

VGA snið með 4:3 myndhlutfalli.

320×240(4:3)

QVGA snið með 4:3 myndhlutfalli.

176×144(11:9)

Notaðu þetta snið til að taka myndskeið upp sem þú getur sent til vina með MMS.

Upptökutíminn fyrir þetta snið er takmarkað þannig að myndskeiðsskráin geti passað í

margmiðlunarskilaboðið.

Myndavélarljós

Notaðu ljósið til að taka upp myndskeið þegar lýsing er léleg eða þegar baklýsing er til

staðar.

Kveikt

73

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Slökkt

Stundum geta myndgæðin verið betri án ljóssins, jafnvel þótt lýsingin sé léleg.

Sjálfvirk tímastilling

Með tímastillinum er hægt að taka upp myndskeið án þess að halda á tækinu. Notað til

að taka upp myndskeið af hóp þar sem allir geta verið á myndskeiðinu. Þú getur einnig

notað tímastilli til að koma í veg fyrir að myndavélin hristist við upptöku myndskeiða.

Kveikt (10 sek.)

Stilltu á 10 sekúndna töf frá því að pikkað er á myndavélarskjáinn þar til að myndskeið er tekið upp.

Kveikt (2 sek.)

Stilltu á tveggja sekúndna töf frá því að pikkað er á myndavélarskjáinn þar til að myndskeið er tekið upp.

Slökkt

Myndupptakan hefst um leið og þú pikkar á myndavélarskjáinn.

Flýtiræsing

Notaðu flýtiræsingu til að ræsa myndavélina úr læstum skjá. Ef tækið er í svefnstillingu

myndavélarinnar ýtirðu á myndavélartakka myndavélarinnar.

Ræsa og smella af

Með því að ýta og halda myndavélartakkanum inni er mynd tekin strax og myndavélin er ræst úr

svefnstillingu.

Aðeins ræsa (ljósmyndavél)

Með því að ýta og halda niðri myndavélartakkanum er ljósmyndavélin ræst úr svefnstillingu.

Ræsa og taka upp myndskeið

Með því að ýta og halda niðri myndavélartakkanum er fyrsta myndskeiðið tekið um leið og

myndupptökuvélin er ræst úr svefnstillingu.

Aðeins ræsa (kvikmyndatökuvél)

Með því að ýta og halda niðri myndavélartakkanum er myndupptökuvélin ræst úr svefnstillingu.

Slökkt

Fókusstilling

Fókusstillingar stýra því hvaða hluti myndskeiðsins er skarpur. Þegar kveikt er á

samfelldum sjálfvirkum fókus stillir myndavélin stöðugt fókus til að svæðið innan hvíta

fókusrammans haldi skerpu sinni.

Stakur sjálfv. fókus

Myndavélin stillir sjálfkrafa fókus á valið myndefni. Kveikt á samfelldum sjálfvirkum fókus.

Andlitsgreining

Myndavélin nemur sjálfkrafa allt að fimm mannsandlit og birtist rammi utan um þau í myndglugganum.

Myndavélin stillir sjálfkrafa fókus á andlitið sem er næst. Einnig er hægt að velja hvaða andlit á að stilla

fókus á með því að pikka á það á skjánum. Þegar þú pikkar á myndavélarskjáinn sýnir grænn rammi

hvaða andlit er valið og í fókus. Ekki er hægt að nota andlitsgreiningu í öllum umhverfisstillingum. Kveikt á

samfelldum sjálfvirkum fókus.

Ljósgildi

Þessi stilling gerir þér kleift að ákveða magn ljóss á myndinni sem á að taka. Hærra gildi gefur til kynna

hærra birtustig.

Hvítjöfnun (ljósgjafi)

Hvítjöfnunarstillingin stillir litajafnvægið í samræmi við birtuskilyrði.

Sjálfvirk

Stillir litajafnvægið sjálfkrafa að birtuskilyrðum.

Ljósapera

Stillir litajafnvægi fyrir hlýja birtu, eins og í lýsingu frá ljósaperum.

74

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Flúrljós

Stillir litajafnvægið að flúrlýsingu.

Dagsbirta

Stillir litajafnvægið fyrir sólskin utandyra.

Skýjað

Stillir litajafnvægið að skýjuðu veðri.

Mæling

Þessi eiginleiki ákvarðar sjálfkrafa rétta lýsingu með því að mæla magn ljóssins í mynd

sem á að taka.

Miðjun

Stillir lýsingu á miðju myndarinnar.

Meðaltal

Reiknar út lýsingu samkvæmt magni ljóssins á allri myndinni.

Punktur

Stillir lýsingu á mjög litlum hluta myndarinnar sem þú vilt taka.

Hristivörn

Erfitt getur verið að halda tækinu stöðugu þegar myndskeið er tekið upp. Hristivörnin

dregur úr áhrifum vegna smávægilegra hreyfinga handarinnar.

Hnitamerking

Merktu myndir með upplýsingum um hvar þær voru teknar.

Kveikt

Þegar kveikt er á hnitamerkingu er námunduð landfræðileg staðsetning vistuð með myndum þegar þú

tekur þær. Til að nota hnitamerkingu þarftu að gera staðsetningareiginleika virka í Stillingar valmyndinni.

Til að hægt sé að vista hnitamerkingu með mynd þarf að ákveða staðsetningu áður en mynd er tekin.

Staðsetning er greind þegar birtist á myndavélarskjánum. Á meðan tækið þitt ákvarðar staðsetningu
sést .

Slökkt

Þegar slökkt er á hnitamerkingu er ekki hægt að sjá staðsetningu myndatökunnar.

Hljóðnemi

Veldu hvort taka á upp hljóð þegar myndskeið eru tekin upp.

Snertitaka

Veldu fókussvæði með því að snerta myndavélarskjáinn með fingrinum. Myndin er tekin

um leið og þú tekur fingurinn af. Þessi stilling er aðeins í boði þegar fókusstilling er stillt á

snertifókus.

Kveikt

Slökkt

Lokarahljóð

Veldu að kveikja eða slökkva á lokarahljóði þegar þú tekur upp myndskeið.

Gagnageymsla

Þú getur valið að vista gögnin þín annað hvort á færanlegt SD-kort eða yfir í innri geymslu

tækisins.

Innri geymsla

Myndir eða myndskeið eru vistuð á minni tækisins.

SD-kort

75

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Myndir eða myndskeið eru vistuð á SD-kort.

76

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.