Google Maps™
Notaðu Google Maps™ til að finna staðsetninguna þína, skoða upplýsingar um umferð í
rauntíma og fá nákvæmar leiðbeiningar á áfangastaðinn. Fyrir ferðalag geturðu sótt og
vistað kort á minniskortið til að komast hjá háum reikikostnaði.
Forritið Google Maps™ þarfnast internettengingar. Gagnatengingargjöld kunna að verða
innheimt þegar þú tengir tækið við internetið. Hafðu samband við símafyrirtækið þitt til að fá
frekari upplýsingar. Hugsanlega er forritið Google Maps™ ekki í boði á öllum mörkuðum,
löndum eða svæðum.
Til að nota Google Maps™
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á Kort.
Ef þú vilt nota Google Maps™ þarftu að kveikja á minnst einni af staðsetningaraðferðunum
sem eru í boði undir Stillingar > Staðsetningarþjónusta.
Til að fá frekari upplýsingar um Google Maps™
•
Þegar þú notar Google Maps™ pikkarðu á og síðan á Hjálp.
Staðsetning vina skoðuð með Google Latitude™
Skráðu þig á Google Latitude™ til að sjá staðsetningu vina á kortum og deildu
staðsetningu þinni og öðrum upplýsingum með þeim.