Sony Xperia L - Rafhlaða

background image

Rafhlaða

Rafhlaðan hlaðin

Rafhlaða tækisins er hlaðin að hluta þegar tækið er keypt. Það getur tekið nokkrar

mínútur áður en rafhlöðutáknið birtist á skjánum þegar þú tengir snúru hleðslutækisins

við orkugjafa, eins og USB-op eða hleðslutæki. Þú getur notað tækið meðan á hleðslu

stendur. Það veldur hvorki skemmdum á tækinu né rafhlöðunni að hlaða tækið lengi í

einu, t.d. yfir nótt.

Rafhlaðan afhleður sig aðeins þegar hún hefur náð fullri hleðslu og hleður sig svo aftur eftir

ákveðinn tíma, á meðan hleðslutækið er tengt. Þetta er til að auka rafhlöðuendinguna og getur

leitt til þess að staða hleðslunnar sýni undir 100 prósent.

11

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Til að hlaða tækið þitt

1

Stingdu hleðslutækinu í rafmagnsinnstungu.

2

Stingdu stærri enda USB-snúrunnar í samband við USB-tengið á tölvunni.

3

Stingdu öðrum enda snúrunnar í samband við micro USB-tengið á tækinu og láttu

USB-táknið snúa upp. Rafhlöðuljósið kviknar þegar hleðsla hefst.

4

Þegar rafhlöðuljósið er grænt er tækið fullhlaðið. Aftengdu USB-snúruna með því

að toga hana beint út. Gættu þess að beygla ekki tengið þegar þú tekur snúruna

úr sambandi við tækið.

Notaðu hleðslutækið og USB-snúruna sem fylgdi tækinu til að tryggja hraðari hleðslu.

Ef rafhlaðan er algjörlega tóm gætu nokkrar mínútur liðið þar til ljósið kviknar eftir að

hleðslusnúru tækisins er stungið í samband við aflgjafa.

Staða LED rafhlöðu

Grænn

Rafhlaðan er fullhlaðin

Blikkandi rautt

Rafhlaðan er að tæmast

Appelsínugult

Verið að hlaða rafhlöðu. Verið er að hlaða rafhlöðuna. Stigið er á milli lágs og fulls

Til að athuga hleðslustöðu rafhlöðunnar

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Um símann > Staða > Hleðsla rafhlöðu.

Bæta afköst rafhlöðunnar

Þú getur notað eftirfarandi aðferðir til að bæta afköst rafhlöðunnar:

Hladdu tækið oft. Það hefur ekki áhrif á endingartíma rafhlöðunnar.

Niðurhal af internetinu krefst orku. Þegar þú ert ekki að nota internetið geturðu sparað

orku með því að loka öllum gagnatengingum á farsímakerfum. Þessi stilling kemur ekki í

veg fyrir að tækið flytji gögn á öðrum þráðlausum netum.

Slökktu á Bluetooth® og Wi-Fi® tengingum þegar þú þarft ekki þessa eiginleika. Þú

getur kveikt og slökkt á þeim á auðveldan hátt frá tilkynningasvæðinu með því að draga

stöðustikuna niður.

Notaðu STAMINA-stilling og Sparstilling eiginleikana til að draga úr rafhlöðunotkun. Þú

getur valið þá orkusparnaðarstillingu sem best samræmist tækjanotkuninni þinni. Þú

getur líka sérsniðið stillingar fyrir hverja orkusparnaðarstillingar.

Stilltu samstillingarforritin þín (sem eru notuð til að samstilla tölvupóstinn, dagbókina og

tengiliðina), til að samstilla handvirkt. Einnig er hægt að samstilla sjálfvirkt, en minnka þarf

tíðni samstillinga.

Athugaðu notendavalmynd rafhlöðunnar í tækinu til að sjá hvaða forrit notar mestu

orkuna. Rafhlaðan þín notar meiri orku þegar þú notar myndskeið og

tónlistarstraumspilunforrit eins og YouTube™. Sum forrit sem sótt eru frá Google Play™

kunna einnig að nota meiri orku.

Lokaðu og farðu úr forritunum sem þú notar ekki.

Minnkaðu birtustig skjásins.

Slökktu á tækinu eða virkjaðu Flugstilling stillingu ef þú ert á svæði þar sem

símkerfistenging er ekki til staðar. Annars leitar tækið sífellt að símkerfi, slíkt notar orku.

12

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Hlustaðu á tónlist í handfrjálsu tæki frá Sony™. Handfrjáls búnaður krefst minni

rafhlöðuorku en hátalarar tækisins.

Hafðu tækið í biðstöðu þegar það er mögulegt. Biðtími á við um tímann meðan tækið er

tengt við símkerfi og er ekki notað.

Slökktu á live-veggfóðri.

Til að opna valmyndina fyrir notkun rafhlöðunnar

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Orkustjórnun > Rafhlöðunotkun til að sjá hvaða

uppsett forrit reyna mest á rafhlöðuna.

STAMINA-stilling notuð

Virkjaðu STAMINA-stilling eiginleikann til að gera hlé á Wi-Fi® tengingunni,

gagnaumferð og nokkrum forritum sem nota orku þegar skjárinn er óvirkur. Þegar

STAMINA-stillingin er virk getur þú samt tekið við símtölum, textum og

margmiðlunarskilaboðum. Þú getur einnig sett forritalista upp til að leyfa sumum forritum

að keyra þegar skjárinn er óvirkur. Þegar skjárinn verður virkur aftur halda allir valkostirnir

áfram sem hlé var gert á.

STAMINA-stilling virkt

1

Dragðu stöðustikuna niður á við og pikkaðu svo á .

2

Finndu og pikkaðu á Orkustjórnun.

3

Dragðu sleðann við hliðina á STAMINA-stilling til hægri, pikkaðu síðan á Virkja.

birtist í stöðustikunni þegar kveikt er á STAMINA-stillingu.

STAMINA-stilling gerð óvirk

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Orkustjórnun.

3

Pikkaðu á við hliðina á STAMINA-stilling.

Til að breyta stillingum fyrir STAMINA-stillingu

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Orkustjórnun.

3

Til að opna stillingarvalmyndina pikkarðu á STAMINA-stilling.

4

Bættu við eða fjarlægðu forritin, eins og óskað er eftir.

5

Þegar því er lokið pikkarðu á Lokið.

Áætlaður biðtími í tækinu þínu

Um biðtíma er átt við fjöldi tíma sem rafhlaðan endist þegar tækið þitt er tengt við símkerfi

en er ekki í notkun, til dæmis, hringt er í eða úr tækinu. STAMINA-stilling, þegar hún er

virk, metur stöðugt biðstöðuna sem eftir er, sem getur verið mismunandi eftir því hvernig

þú notar tækið. STAMINA-stilling er virkari með því að lengja biðtíma ef þú hefur skjáinn

læstan á tækinu þínu. Ef þú læsir sjaldan skjánum, getur verið að þú sjáir ekki að

rafhlöðugetan bætist.

Þegar þú notar tækið í fyrsta sinn, getur verið að áætlaður biðtími sé ekki nákvæmur þar sem

engin saga er fyrir til að áætla hann út frá.

Til að skoða áætlaðan biðtíma

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Orkustjórnun.

Notkun hálf tómra rafhlöðustillingar

Þú getur virkt Sparstilling eiginleikann til að spara orku þegar rafhlaðan er hálf tóm. Þessi

eiginleiki hjálpar þér að stilla stillingar fyrir birtustig skjásins, gagnaumferð og

titringsvalkostsins þannig að þú getur minnkað rafhlöðunotkunina.

13

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Hálf tóm rafhlöðustilling virkjuð

1

Dragðu stöðustikuna niður á við og pikkaðu svo á .

2

Finndu og pikkaðu á Orkustjórnun.

3

Dragðu sleðann við hliðina á Sparstilling til hægri.

Hálf tóm rafhlöðustilling gerð óvirk

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Orkustjórnun.

3

Pikkaðu á við hliðina á Sparstilling.

Til að breyta stillingum fyrir hálf tóm rafhlöðustillingu

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Orkustjórnun.

3

Til að opna stillingarvalmyndina pikkarðu á Sparstilling.

4

Stilltu stillingar eins og óskað er eftir.

5

Þegar því er lokið pikkarðu á .