Lagalegar upplýsingar
Sony C2105/C2104/
Þessi notendahandbók er gefin út af Sony Mobile Communications AB eða dótturfyrirtæki þess í viðkomandi landi,
án nokkurrar ábyrgðar. Sony Mobile Communications AB er heimilt hvenær sem er og án fyrirvara að gera
endurbætur og breytingar á handbókinni sem nauðsynlegar kunna að vera vegna prentvillna, ónákvæmni núverandi
upplýsinga eða endurbóta á forritum og/eða búnaði. Slíkar breytingar verða þá gerðar á seinni útgáfum
handbókarinnar.
©Sony Mobile Communications AB, 2013.
Allur réttur áskilinn.
Með símanum er hægt að hlaða niður, vista og framsenda viðbótarefni, t.d. hringitóna. Notkun slíks efnis kann að
vera takmörkuð eða bönnuð með réttindum þriðja aðila, þ.m.t. en ekki eingöngu vegna takmarkana samkvæmt
ákvæðum höfundarréttar. Þú en ekki Sony, berð algera ábyrgð á því efni sem þú hleður niður í farsímann eða
framsendir úr honum. Áður en þú notar viðbótarefni skaltu ganga úr skugga um að ætluð not séu í samræmi við
leyfisskilmála eða heimiluð með öðrum hætti. Sony ábyrgist ekki nákvæmni, samkvæmni eða gæði utanaðkomandi
efnis né annars efnis frá þriðja aðila. Undir engum kringumstæðum er Sony ábyrgt á nokkurn hátt vegna
misnotkunar þinnar á utanaðkomandi efni eða efni frá þriðja aðila.
Þessi notendahandbók kann að vísa til þjónustu eða forrita sem þriðju aðilar veita. Notkun á slíkum forritum eða
þjónustu kann að krefjast sérstakrar skráningar hjá þriðja aðila og kann að vera háð sérstökum notkunarskilmálum.
Vinsamlegast lestu fyrst notkunarskilmála og viðeigandi persónuverndarstefnu þeirra forrita sem eru fengin á eða í
gegnum vefsíðu þriðja aðila. Sony tryggir hvorki né ábyrgist framboð eða afköst vefsvæða eða veittrar þjónustu
þriðja aðila.
Fjarlægðu rafhlöðuna til að sjá lagalegar upplýsingar, eins og CE-merkið.
Öll vöru- og fyrirtækjaheiti sem nefnd eru hér eru vörumerki og skráð vörumerki viðkomandi eiganda. Allur réttur
sem ekki er veittur skýlaust í handbók þessari er áskilinn. Öll önnur vörumerki eru eign viðkomandi eigenda.
Nánari upplýsingar er að finna á www.sonymobile.com.
Myndir hafa það hlutverk að gefa notendum hugmynd um vöruna og ekki er víst að þær lýsi símanum nákvæmlega.
Þessi vara er varin af tilteknum hugverkarétti Microsoft. Notkun eða dreifing á slíkri tækni utan vörunnar er óheimil
án leyfis Microsoft.
Eigendur efnis nota WMDRM-tækni (Windows Media stafræna réttindatækni) til að verja hugverkarétt sinn, þ.m.t.
höfundarrétt. Þetta tæki notar WMDRM-hugbúnað til að fá aðgang að WMDRM-vörðu efni. Ef WMDRM-
hugbúnaður getur ekki varið efni kunna eigendur þess að fara fram á að Microsoft afturkalli getu hugbúnaðarins til
að nota WMDRM til að spila eða afrita varið efni. Afturköllun hefur ekki áhrif á óvarið efni. Þegar þú hleður niður
leyfum fyrir varið efni samþykkir þú að Microsoft geti sent afturköllunarlista með leyfunum. Eigendur efnis kunna að
biðja um að WMDRM verði uppfært svo hægt sé að opna efni þeirra. Ef uppfærslu er hafnað getur verið að ekki sé
hægt að opna efnið sem biður um uppfærsluna.
Þessi vara er skráð með MPEG-4 og AVC leyfum til einkanota, ekki í viðskiptalegum tilgangi, notanda til að (i) kóða
myndefni í samræmi við MPEG-4-staðalinn („MPEG-4 myndefni“) eða AVC-staðalinn („AVC-myndefni“) og/eða (ii)
afkóða MPEG-4 eða AVC myndefni sem hefur verið kóðað af notanda til einkanota, en ekki í viðskiptalegum tilgangi,
og/eða fékkst hjá aðila með leyfi frá MPEG LA til að dreifa MPEG-4 og AVC myndefni. Ekkert leyfi er veitt eða
undirskilið til neinnar annarrar notkunar. Viðbótarupplýsingar, þ.m.t. sem tengjast auglýsingum, notkun innanhúss
og notkun í viðskiptaskyni og leyfisveitingu, er hægt að fá frá MPEG LA, L.L.C. Sjá http://www.mpegla.com. MPEG
Layer-3 hljóðafkóðunartækni með leyfi frá Fraunhofer IIS og Thomson.
119
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.